B-vítamín

Venjulegt verð
4.490 kr
Venjulegt verð
4.490 kr
Söluverð
4.490 kr
Skattur innifalinn.
Magn

Lýsing

Fljótandi B-vítamín. Gjarnan gefið hundum og hestum á álagstímum t.d vegna vinnu, veiðitímabila, veikinda, tíkum eftir got, fyrir sýningar, ferðalög, flutninga og margt fleira.

B-vítamín hefur mjög góð áhrif á taugakerfi, vinnur m.a gegn stressi og óróleika. Vítamínið er vatnsleysanlegt og ekki þarf að hafa áhyggjur af ofskömmtun eða að það eyðileggi fyrir upptöku annarra vítamína.

B-vítamín er nauðsynlegt fyrir húð og feld og oft getur B-vítamínkúr hjálpað til við að ná upp betri feldi og dregið úr hárlosi auk þess sem það er notað til að auka matarlyst. Vítamínið er yfirleitt gefið í 1-3 vikur í senn út á fóður eða beint í munn. Flestum hundum þykir þetta bragðgott.

Inniheldur
B1 vítamín, B6 vítamínn, B12 vítamín